Great mama

Skondin þessi tilvera....

28 júní, 2005

Sko þetta gat hún...

Nú er þetta að gera sig, þ.e. fór í ræktina í gærmorgun og púlaði þar á mínu göngubretti og teygði allan skrokkin.

Fór síðan í sund í morgun og synti 200 metra og þá voru axlirnar farnar að kvarta, svo ég bara skellti mér í heita pottinn í smástund. Þetta voru sko ekki 1000 metrar eins og Sigrún Halldórs syndir eins og selur á morgnana. Ef ég hefði reynt það, þá væri einhver að fiska mig upp af botninum núna!

En hver veit, kannski get ég það einhver tíma. ;-)

More later....

3 Comments:

At 28/6/05 10:18, Anonymous Nafnlaus said...

Kannski ekki alveg eins og selur,... en maður bögglast þetta áfram :-)

 
At 28/6/05 10:21, Blogger Helena Sif said...

Er bara verið að taka á því?

 
At 28/6/05 11:53, Blogger Great mama said...

Jamm... maður reynir !

 

Skrifa ummæli

<< Home