Great mama

Skondin þessi tilvera....

18 september, 2006

Rúdolf með rauða nefið....

Nei, nei - ég veit það eru enn rúmir þrír mánuðir til jóla.

En það var nefnilega þannig fyrir um þremur vikum síðan, að ég og minn ektakarl skelltum okkur í Húsafell. Við leigðum þar bústað yfir helgina og hugsuðum okkur gott til glóðarinnar að liggja leti í heitum potti og fara í göngutúra.
Það gekk allt eftir eins og til stóð, nema að ég var bitin af einhverjum pöddum (að öllum líkindum bitmýi) á nefbroddinn og við hægri olnbogann.

Þegar í bæinn kom var mitt litla nef orðið eldrautt og bólgið og ekki var olnboginn mikið betri. Það sem var verra var að ég var með svo rosalegan æðaslátt í nefinu.
Minn karl stóðst ekki mátið og kallaði sína kellu "Rúdolf" í tíma og ótíma.
Ég endaði á því að þurfa ofnæmislyf og sterakrem til að eiga við ósköpin.
Núna þremur vikum seinna er nefið ekki enn búið að jafna sig að fullu.

Mér varð nú bara að orði að það væri sko eins gott að ég yrði ekki fyrir árás frá her af einhverjum bítandi eða stingandi pöddum. Ég myndi hreinlega öll bólgna út.

Einhvern veginn hefur þetta rauða nef orðið til þess að mér hefur orðið meira hugsað til jólanna heldur en ég er vön á þessum tíma. Fer að koma tími á að draga fram jólalögin og æfa þau fyrir jólatónleika Léttsveitarinnar þetta árið.

Skemmtileg þessi ferðalög - alltaf eitthvað óvænt sem gerist.

More later....

2 Comments:

At 18/9/06 23:15, Blogger Inger said...

Já mamma mín, ekki skrítið að þú bloggir eitthvað um jólin á afmælinu mínu :)....jólalög eiga til dæmis við allan ársins hring :)

knús og kossar :)

 
At 19/9/06 09:00, Blogger Great mama said...

Inger mín - það er nú svolítið þú. Þú spilar jólalög hvenær sem er. Til hamingju elsku dúllan mín með að vera orðin 29 ára (oh my God - litla barnið mitt er orðið svona gamalt). Ekki að furða þó ég tali um jólin - það er svo ósköp stutt síðan þú fæddist.
Mamma

 

Skrifa ummæli

<< Home