Great mama

Skondin þessi tilvera....

29 júní, 2005

Jeminn....

hvað ég er þreytt ! Fór í ræktina í morgun og nú er ég alveg búin á því. Mig verkjar í fæturna - minnir mig mest á þegar ég var 8 ára og var á fullu í ballett og fékk stanslausa verki í fæturna og var þá látin hætta í mánuð eða meira og hvíla skrokkinn. Þá var maður strax farin að ofbjóða sér.

Ekki að það sé svo núna, heldur er þetta pottþétt gigtin mín sem er að hellast yfir mig eina ferðina enn. Rigning á leiðinni og fullt af lægðum við landið. Hefur aldrei átt vel við mig þegar veðurfarið er þannig.

Eins gott að ég fór ekki í göngu með Léttunum í gærkveldi (er alltaf á leiðinni að mæta í eina slíka) þá hefði ég sjálfsagt ekki komist fram úr rúminu í morgun. Hell.... mar er algjör aumingi að verða.

En það skal ekki slegið við slöku - geri það sem ég má í þessum líkamsræktunarmálum og fer í sund í fyrramálið.

Stefni á að leggja mig um leið og ég kem heim - sófinn kallar !

More later....

6 Comments:

At 29/6/05 10:17, Blogger Helena Sif said...

Þetta er nú meira bloggið hjá okkur. Ekkert nema kvart og kvein yfir líkamsrækt.

 
At 29/6/05 10:18, Blogger Great mama said...

Já - enda er þetta ekki tekið út með sældinni. Púfff.....

 
At 29/6/05 19:41, Anonymous Nafnlaus said...

Jiii minn ég vissi ekki að þú værir byrjuð að blogga aftur. Graturlera..og líka með líkamsræktina..nú verð ég að fara að ná af mér ítölsku kílóunum.

 
At 30/6/05 07:51, Anonymous Nafnlaus said...

Mamma ég get sko alveg tekið þig í tíma í ræktinni
En samt þessar umræður á blogginu hjá þér og helenu eru farnar að láta mig líta illa út. Fólk fer bara að halda að ég sé einhver Hitler

 
At 30/6/05 08:25, Blogger Great mama said...

Lotta mín - bara skrifa blogg og þá getur þú svarað fyrir það sem við Helena erum að skrifa um þig. Nei, nei bara segi svona - þú ert sko fín - bara smágrín ;-)

 
At 30/6/05 10:57, Anonymous Nafnlaus said...

Guess what my líka gera grín

 

Skrifa ummæli

<< Home