Frí árið 2007?
Hún Lotta er nú að leggja drög að því að við mæðgurnar fjórar ásamt mökum og börnum förum saman í frí í Janúar 2007 til Kanarí eða Flórída. Hún er í fríi og þá poppar mín upp á MSNinu og stingur upp á þessu.
Mér líst vel á þetta. Væri rosagaman að fara öll saman út, svo ekki sé talað um um miðjan vetur.
Það er ekki ráð nema í tíma sé tekið og vel framkvæmanlegt - nægur tími til stefnu.
Held við ættum að róa öllum árum að þessu. Og nú er "stjórnandinn" hún Lotta búin að setja mig í að finna hús til leigu á Florida á netinu. Hmmmm.... er hún ekki í fríi?
More later...
3 Comments:
Þú ert bara svo miklu betri í að finna svona stuff á netinu mamma mín.
Og by the way you love it.
kv.Lotta
Fyndið hvernig sumt fólk þorir ekki að koma fram undir nafni. Hmmm...
En þetta er rétt hjá henni LOTTU, þú ert voða klár að finna svona stuff á netinu.
Var heldur ekki lengi að því - tók 5 mínútur. Rosaflott hús sem rúmar 14 manns. Skoðum málið.
;-) Mamma
Skrifa ummæli
<< Home