Great mama

Skondin þessi tilvera....

17 ágúst, 2005

50 ára og eldri

Ég rakst á auglýsingu um sölu á íbúðum í nýrri blokk fyrir 50 ára og eldri. Og allt í einu laust þeirri hugsun niður í kollinum á mér; Jeminn, þetta er fyrir fólk eins og mig! Ég er sem sagt löglega komin í þann hóp að geta keypt mér húsnæði í eldrimannblokk.

Ekki það að ég sé að fara að kaupa mér eina slíka íbúð, en ég er orðin gjaldgeng. Alla malla! Ég nefndi þetta við frumburðinn minn sem er nú komin á fertugsaldur (ha ha Helena - það verður sko ekki langt þangað til þú verður í sömu sporum og ég) og hún hreinlega grenjaði úr hlátri.

Ég sagði henni að ef ég myndi nú fara í það að kaupa mér svona íbúð núna þá gæti Bjarni ekki flutt með mér. Þessi elska er miklu yngri en ég. Hann yrði sko að búa einhvers staðar annars staðar næstu þrjú árin.

En að öllu gamni slepptu þá líður þessi tími á ógnarhraða og lífið er allt í einu svo örstutt. Það er því best að reyna að njóta þess út í ystu æsar.

Þar sem ég er enn í fríi - þá er best að skreppa í bæinn á kaffihús og kannski á safn eða eitthvað annað skemmtilegt.

More later....

3 Comments:

At 18/8/05 11:39, Anonymous Nafnlaus said...

Þarft nú að fara að huga að þessu kona. Eða þurfum við dætur þínar að fara að huga að elliplássi fyrir þig!
Hihihihihi

 
At 24/8/05 17:20, Blogger Ingibjörg Margrét said...

Ertu nokkuð flutt í svona blokk og hætt að blogga?

 
At 25/8/05 15:28, Anonymous Nafnlaus said...

Nei... en hægist ekki á öllu þegar maður er orðinn gjaldgengur í elliblokk?
Hmmm.... kominn tími á að blogga meira.

 

Skrifa ummæli

<< Home