Tungumál
Það eru búnir að vera rosalega annasamir dagar hjá mér í vinnunni þessa vikuna. Búin að vera á fullu að skrifa handbók á ensku og síðan að uppfæra hana með hollenskum myndum og vísa í hollensk orð.
Svo er ég að basla við að læra þýsku og á að mæta þar eftir hálftíma. Djísus.... öll þessi mál (og danska í bland - erum með viðskiptavini þar líka) eru komin í einn hrærigraut í mínum gamla haus.
Maður flippar á milli þessara mála og notar svo móðurmálið þess á milli og nú er ég alveg viss um að ég get ekki sagt stakt orð á þýsku á eftir. Og á þessu námskeiði sem ég er á núna leyfist mér ekki að tala neitt nema þýsku!
Well, man skal reyna að sprache Deutsch.
Púffff....eins og heilinn hafi lent í "blendernum".
More later....
2 Comments:
Mamma þú segir bara Ich habe keine Anung´
kv.Lotta
Já - rosagott að hafa það í bakhöndinni. Annars gekk þetta ótrúlega vel - gat bara gert mig skiljanlega á þýsku í þessum tíma.
Kannski hefur maður bara gott af þessum málahrærigraut.
Skrifa ummæli
<< Home