Great mama

Skondin þessi tilvera....

11 janúar, 2006

Hann á afmæli hann Bjarni...



hann er 48 ára í dag! Þessi mynd var tekin af honum í kirkjugarði í Moskvu 2 dögum eftir að ég varð 50 ára í apríl á síðasta ári. Þarna eru helstu fyrirmenn gömlu Sovétríkjanna (þ.e. þeir sem ekki eru jarðaðir innan Kremlarmúranna) jarðaðir.

Ekki amalegt að eiga yngri mann og svona líka myndarlegan.

Til hamingju elskan mín og nú ætla ég að fara að hafa kaffið og kökurnar (sem bakarinn bakaði - læt sko fagmenn um þetta þegar tíminn er naumur) til fyrir þig og afmælisgestina.

More later....

2 Comments:

At 12/1/06 13:27, Anonymous Nafnlaus said...

Til lukku með ungmennið

 
At 12/1/06 19:45, Blogger Great mama said...

Takk kærlega!

 

Skrifa ummæli

<< Home